Þar eru nú í framboði tveir listar; Á-listinn og D-listi Sjálfstæðisflokksins. Þetta eru sams konar framboð og var fyrir fjórum árum en þá sigraði Á-listinn með 11 atkvæða mun. Fram að þeim tíma höfðu menn Sjálfstæðisflokksins jafnan stjórnað þessu svæði, lengur en elstu menn mundu. Úrslitin síðast kunna að talsverðu leyti að hafa byggst á markvissri forystu Eggerts Vals Guðmundssonar, það að Sjálfstæðismenn sýndu engin pólitísk hyggindi á framboðsfundinum og vegna þess að margir töldu ekki heppilegt að Sjálfstæðisflokkurinn gæti alltaf gengið að sigrinum sem vísum, enda er það gott fyrir valdaöflin að komast stundum í minnihluta.
Þegar núverandi framboðslistar voru nýbirtir, þá stóð sá er þetta ritar frammi fyrir þremur valkostum; að kjósa Á-listann, D-listann eða að skila auðu. Þá gerist það að í Morgunblaðinu 20. apríl (bls. 6) lýsir Eggert Valur því yfir að „hann sé Evrópusinni.“
Það liggur alveg ljóst fyrir að Evrópusinnar vilja að Ísland gangi í Evrópusambandið (ES). „Æðstupostular“ slíks boðskapar orða það hins vegar svo í sínum lymskulygum, að við eigum að „kíkja í pakkann“ til að sjá hvað sé í boði. Allir sem einhvern skilning hafa á samtímanum vita, að innganga í ES, leiddi smám saman til þess að auðlindir landsins (fiskurinn, raforkan, ferskvatnið o.fl) lenti í höndum útlendinga og verulegar líkur eru á því að slík innlimun leiddi til þess að íslenskur landbúnaður legðist að miklu leyti af, ásamt þeirri margþættu úrvinnslu landbúnaðarafurða sem nú er starfrækt, m.a. í Rangárvallasýslu. Og fullveldi landsins yrði að engu orðið, að einhverjum tíma liðnum.
Nú standa því yfir örlagarík átök um framtíð þjóðarinnar; annarsvegar um innlimun í Evrópustórveldið, eða halda í það fullveldi sem hefur reynst okkur farsællega. Þessi fullveldisbarátta fer fram á öllum „vígstöðvum“ ma. í málflutningi forystumanna sveitarstjórnanna og það er þess vegna sem fullveldissinnar eiga að hafna þeim framboðslistum, þar sem Evrópusinnar eru í oddvitasætinu.
Ekki veit ég annað en Eggert Valur sé að öðru leyti mætur maður og margt ágætisfólk er á lista hans. Hins vegar vil ég trúa því að mörg þeirra hefðu ekki tekið sæti á þeim lista ef þau hefðu fyrirfram vitað að oddviti þeirra vildi fullveldi landsins feigt. Þau hefðu hugsanlega átt að koma með sérframboð. Og nú þegar afstaða Eggerts er alveg ljós, þá á ekki að veita framboði hans brautargengi.
Menn hér á Hellu hafa sagt við mig, „varla fer ég að kjósa „íhaldið.““ Þessu vil ég svara á þann veg, að eftir hina sorglegu yfirlýsingu Eggerts Vals, að hann sé Evrópusinni, þá á ég hér í þessu sveitarfélagi ekki annarra kosta völ en að kjósa D-listann í þessum kosningum, þótt ég sé fjarri því að vera sammála Sjálfstæðisflokknum í öllum málum. Í þarnæstu kosningum mun ég svo endurmeta þessa afstöðu mína, en núna er niðurstaðan alveg augljós.
Gunnar Guðmundsson frá Heiðarbrún



