Sveitarfélög eru í grunninn velferðarsamfélög. Þar mætast börn, fjölskyldur og íbúar á öllum stigum lífsins í þjónustu sem skiptir raunverulega máli í daglegu lífi fólks. Öflugir skólar, aðgengilegt frístunda- og félagsstarf og sterk félagsþjónusta eru ekki kostnaður heldur fjárfesting í samfélagi þar sem fólki líður vel og fær tækifæri til að blómstra.
En öflug velferð verður ekki til af sjálfu sér. Hún krefst skýrrar sýnar, fagmennsku og vilja til að fjárfesta í fólki.
Öflugt, faglegt og framsækið skólastarf
Við munum áfram standa vörð um öflugt, faglegt og framsækið skólastarf líkt og verið hefur í sveitarfélaginu um áratugaskeið. Góðir innviðir skipta máli í skólastarfi. Við munum því halda áfram með áform um viðbyggingu við grunnskólann þar sem m.a. aðstaða fyrir verkgreinar, frístundastarf og námsver fyrir börn með sérþarfir verður stórbætt. Með því styrkjum við bæði stuðning við börn og starfsumhverfi þeirra sem sinna mikilvægu starfi á hverjum degi
Í sveitarfélögum allt í kringum okkur er stutt sérstaklega við starfsfólk leikskóla að sækja sér leikskólakennaramenntun. Það tíðkaðist hér á árum áður með góðum árangri. Þá gátu starfsmenn leikskóla sótt sínar staðlotur og haldið launum á meðan. Þessi stuðningur varð til þess að hlutfall fagmenntaðra leikskólakennara hækkaði umtalsvert. Við ætlum að endurvekja þennan stuðning, fjölga fagmenntuðum leikskólakennurum og styrkja þannig grunnstoðir leikskólastarfsins til framtíðar. Samhliða því viljum við efla sérfræðiþjónustu sveitarfélagsins og tryggja að skólar, börn og fjölskyldur hafi greiðara aðgengi að faglegum stuðningi þegar á þarf að halda.
Snemmtæk íhlutun og lágþröskuldaþjónusta
Eitt mikilvægasta verkefni nútíma samfélags er að grípa börn og fjölskyldur fyrr og betur en áður. Þar gegna leik- og grunnskólar lykilhlutverki. Í leik- og grunnskólum sveitarfélagsins er unnið mikilvægt og öflugt starf á hverjum degi af fagfólki sem þekkir börnin vel og sér oft þegar þörf er á stuðningi. Með öflugri stoðþjónustu, góðu aðgengi að sérfræðiþekkingu og snemmtækum stuðningi getum við brugðist fyrr við þegar börn glíma við námserfiðleika, tilfinningavanda eða félagslegar áskoranir.
Við sjáum jafnframt tækifæri í því að koma á samstarfi við aðila eins og Bergið Headspace. Bergið Headspace veitir stuðning og ráðgjöf til ungs fólks á aldrinum 12-25 ára með það að markmiði að bæta líðan og efla virkni ungmenna í samfélaginu. Viðtölin eru einstaklingum að kostnaðarlausu.
Sterk velferð er ein besta fjárfesting sem sveitarfélag getur ráðist í. Þegar við styðjum börn og fjölskyldur snemma, eflum skólaumhverfið og tryggjum aðgengi að þjónustu, skilar það sér margfalt til baka.
Börnin okkar
Í ört stækkandi samfélagi er mikilvægt að missa aldrei tengslin við fólkið sem byggir samfélagið upp á hverjum degi. Við höfum á síðustu mánuðum skoðað hvernig málum er háttað hér í sveitarfélaginu og hjá nágrannasveitarfélögum. Við höfum horft til verkefna sem hafa skilað góðum árangri og geta orðið okkur fyrirmyndir. Eitt þeirra er verkefnið Börnin okkar í Mosfellsbæ. Þar var allt velferðarumhverfi barna kortlagt í góðu samstarfi við hagaðila með það að markmiði að greina hvað væri vel gert og hvar mætti gera betur. Sú vinna leiddi til fjölmargra umbóta. Sem dæmi má nefna aukinn opnunartíma sundlauga, foreldrarölt, eflingu barnaverndarþjónustu og aukið aðgengi foreldra að sálfræðingi og félagsráðgjafa sveitarfélagsins. Við viljum fara í sambærilega kortlagningu, bera kennsl á styrkleika og grípa tækifæri til umbóta.
Fjölgum tækifærum
Frístundir og félagsstarf skipta sköpum fyrir tengslamyndun, sjálfstraust og þátttöku barna og ungmenna í samfélaginu. Ekki öll börn finna sig á sama stað og því þarf samfélagið að bjóða upp á fjölbreytt tækifæri. Við viljum fjölga skapandi sumarstörfum fyrir ungmenni, efla félags- og frístundastarf og tryggja að börn með sérstakar þarfir hafi raunverulegt aðgengi að sértæku frístundastarfi við sitt hæfi.
Við viljum jafnframt efla samstarf við nágrannasveitarfélögin okkar á sviði skóla-, frístunda- og velferðarmála. Mörg börn og ungmenni í sveitarfélaginu sækja skóla, íþróttir og tómstundir út fyrir sveitarfélagamörkin og því mikilvægt að þjónustan myndi heildstætt og samfellt umhverfi fyrir börn og fjölskyldur. Með auknu samstarfi getum við skapað fleiri tækifæri, aukið aðgengi að fjölbreyttri þjónustu og tryggt betur samfellu í stuðningi og þátttöku barna og ungmenna
Hlustum á raddir barna og ungmenna
Unga fólkið okkar hefur rödd. Við viljum leggja mun meiri áherslu á þátttöku þeirra í stjórnsýslunni. Síðustu ár hefur ráðið fundað um tvisvar á ári, samanborið við 8-12 sinnum hjá þeim sveitarfélögum sem við horfum til. Það er styrkur fólginn í öflugu ungmennaráði sem fær raunverulegt vægi í stjórnsýslu sveitarfélagsins. Þau fjalla um mál, veita umsagnir og setja mál á dagskrá. Stóreflum ungmennaráð og gefum því pláss í stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Fyrir sex árum hófst vinna við innleiðingu verkefnis sem snýr að því að Sveitarfélagið Ölfus verði barnvænt sveitarfélag. Það felur í sér að innleiða barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í alla sína stjórnsýslu og starfsemi og lýkur með viðurkenningu UNICEF. Þessari vinnu er ólokið og sveitarfélagið getur því ekki enn kallað sig barnvænt sveitarfélag UNICEF. Samfylkingin og félagar ætla að ljúka þeirri vinnu og tryggja að sjónarmið barna og ungmenna verði raunverulegur hluti af allri stjórnsýslu sveitarfélagsins.
Fyrir börnin okkar – þau sem erfa samfélagið – þurfum við að skapa rými til að vaxa, prófa sig áfram og finna sína rödd. Með öflugum leik- og grunnskólum, fjölbreyttu frístunda- og félagsstarfi og raunverulegu samráði við ungmenni tryggjum við ekki bara góða innviði heldur samfélag sem byggir á trausti, þátttöku og velferð.
Hér er upptaka frá íbúafundi þar sem ég fer yfir málaflokkinn.
Hér má einnig sjá grein um velferð eldra fólks sem ég skrifaði á dögunum.
Berglind Friðriksdóttir, sálfræðingur og skipar 2. sæti á lista Samfylkingar og félaga í Ölfusi


