7.8 C
Selfoss

Ábyrg uppbygging og samheldið samfélag í Hveragerði

Vinsælast

Á undanförnum árum hefur Hveragerði vaxið hratt og laðað til sín nýja íbúa sem vilja njóta þeirra lífsgæða sem bærinn hefur uppá að bjóða. Náttúran, grænu svæðin, blómin og samheldið samfélag eru meðal helstu styrkleika bæjarins. Þeir sem verða kosnir í bæjarstjórn verða að takast á við vöxt bæjarins af ábyrgð og mikilvægt er að uppbygging samfélagsins verði bæði skynsöm og sjálfbær.

Skipulagsmál byggi á virku samtali við íbúa

S-listinn leggur áherslu á að þróun bæjarins byggi á skýrri framtíðarsýn þar sem innviðir, þjónusta og skipulag haldast í hendur við íbúafjölgun. Við viljum ekki hraða uppbyggingu án þess að skólar, leikskólar, umferðarmál, íþróttir, tómstundir og önnur grunnþjónusta fylgi með. Skipulagsmál þurfa að byggja á fagmennsku og virku samtali við íbúana. Við ætlum að tryggja að börn og ungmenni búi við öryggi og styðjandi umhverfi þar sem áhersla er lögð á góða skóla, öflugt frístundastarf og jöfn tækifæri til þátttöku og þroska. Jafnframt þarf að hlúa að eldra fólki með góðri heimaþjónustu og enn fleiri tækifærum til virkrar þátttöku í samfélaginu svo fólk geti búið við öryggi og góð lífsgæði á efri æviárum.

Ábyrg stjórnsýsla og rekstur

Traust og ábyrg stjórnsýsla er forsenda fyrir heilbrigðu samfélagi. Rekstur bæjarfélagsins þarf að einkennast af ráðdeild, gagnsæi og skýrri forgangsröðun. Fjármunum bæjarins þarf að verja af ábyrgð þannig að þeir nýtist sem best til að efla þjónustu og bæta lífsgæði íbúa. Það skiptir máli að ákvarðanir séu alltaf teknar á faglegum grunni og að upplýsingagjöf til íbúa sé opin og aðgengileg.

S-listinn ætlar að styrkja faglega stjórnsýslu þannig að hún geti betur mætt auknum verkefnum samhliða vexti bæjarins. Öflug stjórnsýsla tryggir stöðugleika, eykur traust milli íbúa og bæjaryfirvalda og gerir sveitarfélaginu kleift að bregðast hratt og vel við þörfum íbúa og atvinnulífs.

Samfélag þar sem fólk finnur fyrir öryggi og samheldni

Við á S-listanum ætlum að byggja upp samheldið samfélag þar sem fólk finnur fyrir öryggi. Þess vegna þarf að hlúa að menningu, íþróttum, frístundastarfi og grænum svæðum samhliða annarri uppbyggingu. Það eru ekki aðeins húsin sem skapa góðan bæ — heldur fólkið, þjónustan og bæjarbragurinn.

Framtíð Hveragerðis á að byggjast á ábyrgri uppbyggingu, faglegri stjórnsýslu og skýrri sýn á það hvernig bærinn þróast á næstu árum. S-listinn ætlar að vinna með íbúum að þeirri framtíðarsýn af fagmennsku og metnaði fyrir hönd allra sem hér búa.

S-listinn í Hveragerði óskar eftir þínum stuðningi 16. maí næstkomandi.

Greinarhöfundar skipa forystusæti S-listans í Hveragerði
Birgitta Ragnarsdóttir er í 1. sæti  og Þorsteinn Hjartarson í 2. sæti

Nýjar fréttir