Friðrik Sigurbjörnsson hefur sett nýja vefsíðu í loftið í tengslum við sveitarstjórnarkosningarnar í Hveragerði. Á síðunni hveragerdi.org er safnað saman helstu upplýsingum um þau framboð sem bjóða fram í bænum, þar á meðal kynningum, stefnuskrám, helstu baráttumálum, fréttum og tenglum á síður framboðanna.
Friðrik segir markmiðið vera að auðvelda íbúum að nálgast upplýsingar um framboðin á einum stað nú þegar styttist í kosningar. Tekið er fram að síðan hafi verið unnin með aðstoð gervigreindar og því kunni að leynast villur eða stafsetningarvillur.
Eru Hvergerðingar hvattir til að nýta síðuna til að kynna sér framboðin betur og fylgjast með umræðunni í aðdraganda kosninganna.



