Anna Runólfsdóttir býður sig fram í 3. skiptið til sveitarstjórnar nú í vor og skipar nú 3. sæti á N-lista. Síðustu tvö kjörtímabil hefur hún verið aðalmaður í skipulagsnefnd og beitt sér fyrir umbótum í vegamálum þar sem því er við komið. Hún er verkfræðingur með sérhæfingu í skipulagi og vann í nokkur ár við vegahönnun á verkfræðistofunni Verkís áður en hún flutti heim í Fljótshlíðina.
Í dag eru um 95 km frá Norðlingaholti í Reykjavík að gatnamótum Hringvegar og Hlíðarvegar á Hvolsvelli. Þar af eru u.þ.b. 40 km orðnir að 2+1 vegi, eða nærri helmingur leiðarinnar. Nú er verið að vinna í að brúa Ölfusá og vonandi klárast kaflinn næst Reykjavík líka einhvern tímann. Fyrir um 25 árum var aðeins tvíbreiður vegur alla leið frá Reykjavík nema þar sem voru sérstakar klifurreinar. Það gætu því verið um 20-25 ár þangað til við sjáum þennan veg komast til okkar en vonandi mun það ganga hraðar fyrir sig.
Þetta tekur tíma en samt ótrúlega stuttan og nú skilja aðeins 2 sveitarfélög okkur í Rangárþingi eystra frá þeirri framkvæmd sem nú er í gangi. Sunnlendingar eiga flestir reglulega leið til höfuðborgarinnar og sjá að í Ölfusinu er talsvert net af hliðarvegum samhliða hringveginum. Þeir eru nauðsynlegur þáttur þess að byggja stærri veg, en það fylgir meiri umferð að gatnamót þurfa að vera veglegri og lengra á milli þeirra. Hliðarvegirnir sameina afleggjara og fækka þeim en þeir eru líka dýrir og því best að skipuleggja legu þeirra með löngum fyrirvara til að beina uppbyggingu sem mest að framtíðar gatnamótum við hringveginn.
Vegagerðin lét útbúa drög að 2+1 gerð hringvegarins austur að Jökulsá á Sólheimasandi fyrir hartnær 20 árum en síðan það var gert hefur umferðin aukist gríðarlega og margt einnig komið til í uppbyggingu byggðar og atvinnulífs á svæðinu sem breytir forsendum þeirrar hönnunar.
Það sem Anna stefnir að er að taka þessi frumdrög Vegagerðarinnar til sérstakrar endurskoðunar og koma þeim í næstu útgáfu aðalskipulags sveitarfélagsins. Tengingar við hringveginn eru í dag sem betur fer reyndar frekar fáar þar sem dreifbýlið okkar er að mestu nú þegar við tengivegi eins og Fljótshlíðarveg og í Landeyjum. Einnig eru litlu bogarnir undir Eyjafjöllum ákaflega mikilvægir til að fækka tengingum.
Á nokkrum stöðum liggur meira á við þessa vinnu. Það er mikil uppbygging hótela við Seljaland, auk frístundabyggða á sama svæði og verður nauðsynlegt að gera betri tengingu við hringveginn vegna þeirra áður en langt um líður. Horfa þá á möguleika þess að taka Sandhólmaveginn inn í þá tengingu í samráði við landeigendur á svæðinu.
Sveitarfélagið getur flýtt fyrir umbótum á vegum með því að hafa skipulag vegna þeirra tilbúið áður en fjármögnun fer af stað og þannig sýnt Alþingi og Vegagerð að það standi ekki á okkur að gera nauðsynlegar úrbætur.
Anna vill leggja sitt að mörkum við að bæta umferðaröryggi í sveitarfélaginu til framtíðar og telur þetta verkefni vera lykilþátt til þess. Kjósið N-listann í sveitarstjórnarkosningum 16. maí nk!
N-listinn í Rangárþingi eystra




