11.1 C
Selfoss

Nýsköpun sem skapar störf í GOGG

Vinsælast

Sem oddviti Betri sveitar horfi ég á atvinnumál af raunsæi. Ég tel að fólk sé orðið þreytt á hljómfögrum loforðum fyrir kosningar en skila litlu eftir þær. Íbúar vilja sjá hluti gerast. Þeir vilja sjá fleiri tækifæri fyrir ungt fólk, sterkari rekstrarskilyrði fyrir fyrirtæki og fleiri leiðir fyrir fólk til að byggja sér framtíð hér í heimabyggð. Þess vegna þarf umræðan um atvinnumál í GOGG að snúast um framkvæmd, ekki bara orð.

Tækifærin eru sannarlega til staðar. Í nýjustu fyrirtækjakönnun á Suðurlandi kom fram að mörg fyrirtæki vilja vaxa og fjölga starfsfólki. Helstu hindranirnar eru skortur á vinnuafli og húsnæði. Jafnframt sýna niðurstöður að mikill áhugi er á stafrænum lausnum og nýjum leiðum í rekstri. Vandinn er því ekki skortur á vilja eða framtakssemi, vandinn er að of margir standa einir með hugmyndir sínar og vita ekki hvert þeir eiga að leita.

Við eigum heldur ekki að tala um GOGG eins og hér sé ekkert til staðar. Þvert á móti. Hér er kraftmikið atvinnulíf, fjölbreytt þekking og fólk sem er vant því að bjarga sér. Okkar verkefni sem sveitarfélag er að skapa jarðveg þar sem þessi kraftur fær að blómstra.

Ég hef horft til sveitarfélaga sem hafa náð árangri. Þar sést skýrt að það þarf ekki risaverkefni eða stórkostlegar fjárfestingar til að hreyfa við hlutunum.

Á Hornafirði hefur verið byggður upp vettvangur þar sem frumkvöðlar, fyrirtæki og ungt fólk hittist reglulega. Á Húsavík hefur tæknismiðja orðið staður þar sem hugmyndir verða að veruleika og fólk fær að prófa sig áfram. Í Húnaþingi vestra hefur lítill nýsköpunarsjóður og markviss ráðgjöf kallað fram meiri eftirspurn en margir bjuggust við. Þetta sýnir að jafnvel lítil sveitarfélög geta náð miklum árangri ef þau setja sér skýra stefnu og fylgja henni eftir.

Ég vil að GOGG verði þannig sveitarfélag. Sveitarfélag sem hjálpar fólki áfram. Sveitarfélag þar sem svar við hugmynd er ekki „þetta er of flókið“ heldur „hvernig getum við hjálpað þér að láta þetta gerast?“

Þess vegna vil ég setja á fót einfaldan og aðgengilegan nýsköpunarvettvang í GOGG.

Í fyrsta lagi, ein leið inn. Að íbúar og fyrirtæki viti nákvæmlega hvert þeir eiga að leita. Reglulegir viðtalstímar, bæði á staðnum og á netinu, þar sem fólk getur fengið ráðgjöf um hugmyndir, styrki, rekstur og næstu skref.

Í öðru lagi, öflugt ráðgjafanet. Við eigum að tengja okkur við sérfræðinga í stafrænum lausnum, markaðsmálum, matvælaframleiðslu, ferðaþjónustu, fjármögnun og rekstraruppbyggingu. Þannig fær fólk aðgang að þekkingu sem annars væri langt undan.

Í þriðja lagi, tengslamyndun. Of margar góðar hugmyndir verða aldrei að veruleika vegna þess að rétta fólkið hittist aldrei. Við þurfum frumkvöðlamorgna, opna viðburði, hraðstefnumót milli fyrirtækja og ráðgjafa og vettvang þar sem samstarf verður til.

Ég vil að þessi vinna nýtist breiðum hópi. Bóndanum sem vilja þróa afurðir sínar áfram. Smáframleiðendum sem vill finna sinn markað,. Ferðaþjónustuaðilanum sem vill bæta þjónustu sína og lengja tímabilið. Iðnaðarmanninum sem vill stækka reksturinn. Foreldrinu með aukahugmynd sem gæti orðið að aukatekjum eða framtíðaratvinna. Ungu fólki með hugmyndir og nýjum íbúum sem vilja skapa sér framtíð hér

Við eigum líka að vera heiðarleg um mælanlegan árangur. Ég vil sjá skýr markmið á fyrsta ári; fleiri sem nýta ráðgjöf, fleiri verkefni sem fara af stað, fleiri umsóknir í sjóði og skýr dæmi um ný störf eða aukatekjur.

Mér finnst líka mikilvægt að segja þetta skýrt; nýsköpun snýst ekki bara um hátækni eða stór orð. Hún getur verið ný matvara úr heimahéraði, ný þjónusta fyrir ferðamenn, snjallari rekstur hjá litlu fyrirtæki eða aukastarf sem vex smám saman í fullt starf. Nýsköpun byrjar oft smátt, en áhrifin geta orðið mikil.

Ég trúi því að GOGG geti orðið fyrirmyndarsveitarfélag í nýsköpun á landsbyggðinni.

Við þurfum því að tala minna og framkvæma meira. Ef við stöndum saman sem samfélag, styðjum fólk sem vill skapa eitthvað nýtt og opnum fleiri dyr fyrir framtakið, þá verða störfin ekki til af tilviljun. Þau verða til vegna þess að við ákváðum að byggja þau upp hér heima.

Þess vegna býð ég mig fram fyrir Betri sveit – fyrir okkur öll.

Andrés Bertelsen,
oddviti Ö–listans í Grímsnes- og Grafningshreppi.

Nýjar fréttir