Eins og undanfarin ár verður árlegur hreinsunardagur Selfosskirkju haldinn laugardaginn 25. apríl frá kl. 10 f.h. til kl. 14. Sóknarnefnd og Guðný kirkjuvörður hafa staðið fyrir hreinsunardeginum í nokkur ár með góðri þátttöku fólks á öllum aldri. Það er þakkarvert þegar fólk vill koma og hjálpa til við hreinsun kirkjulóðar og garðs. Við höfum einnig bent fólki á að nýta gáminn sem verður á staðnum til hreinsunar á leiðum ástvina. Að venju verður boðið uppá hressingu í hádeginu. Á afmælisár kirkjunnar, Kirkjan er 70 ára og Kirkjukórinn 80 ára væri gaman að sjá góða þátttöku og vonandi gott veður.
Björn Ingi Gíslason formaður sóknarnefndar




