8.8 C
Selfoss

Helga Guðrún til markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings ytra

Vinsælast

Helga Guðrún Lárusdóttir hefur verið ráðin markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings ytra og mun hefja störf í byrjun maí. Hún er búsett á Selfossi, þekkir vel til á Suðurlandi og hefur sterka tengingu við svæðið og nærsamfélagið.

Starfið var auglýst í lok febrúar og sóttu tólf umsækjendur um, en tveir drógu umsókn sína til baka á meðan á ferlinu stóð.

Helga Guðrún hefur frá árinu 2024 starfað hjá ÞH Blikk á Selfossi þar sem hún sinnti bæði blikksmíðavinnu og markaðs- og kynningarmálum. Þar áður var hún ritstjóri og blaðamaður á Dagskránni og dfs.is. Hún hefur víðtæka reynslu af textagerð, ritstjórn, efnissköpun og vefumsjón, auk verkefnastjórnunar og skipulagningar viðburða.

Helga lauk diplómanámi í skapandi greinum frá Háskólanum á Bifröst með ágætiseinkunn og hefur einnig stundað nám í skapandi skrifum og upplýsinga- og fjölmiðlafræði.

Í starfi sínu mun hún meðal annars bera ábyrgð á markaðs- og kynningarmálum sveitarfélagsins, hafa umsjón með viðburðum á borð við Töðugjöld og þjóðhátíðardaginn á Hellu, sinna vef- og samfélagsmiðlum og eiga í samskiptum við hagsmunaaðila.

Nýjar fréttir