5 C
Selfoss

Ætlar sveitarfélagið Árborg að kasta tæpum milljarði á haugana?

Vinsælast

Í Morgunblaðinu þann 4. febrúar sl. kom fram í viðtali við bæjarstjóra Árborgar, Braga Bjarnason, að Sveitarfélagið Árborg væri að rýma leiguíbúðir aldraða að Grænumörk 1 og 3 á Selfossi, þar sem hugmyndin væri að rífa þessi hús og byggja þar 2-3 hæða blokk fyrir aldraða. Að Grænumörk 1 og 3 eru tvö sambyggð hús á einni hæð með alls átta íbúðum í hvorri húsasamstæðu. Þessi hús voru byggð árið 1980 af frumkvæði sveitarfélagsins og hafa íbúðirnar verið leigðar eldri borgurum. Samkvæmt viðtalinu við bæjarstjórann eru húsin í góðu ásigkomulagi og án allrar myglu.

Hver íbúð er um 50-60 m2 að grunnfleti og ætla má að verðmæti þessara sextán íbúða sé um 700 milljónir króna, en brunabótamat þeirra er um 650 milljónir. Undanfarið hefur Sveitarfélagið Árborg hækkað alla mögulega skatta upp í hæstu hæðir, eins og t.d. útsvar og ýmsa skatta á fasteignir. Samfara þessu ætlar sveitarfélagið Árborg að rífa tvö hús, sem eru í ágætu standi, með alls sextán íbúðir að verðmæti um 700 milljónir króna og byggja þar 2-3 hæða blokk. Þarna virðist skorta virðingu fyrir eignum sveitarfélagsins og það er ekki verið að fara vel með eignir og þá skattfé bæjarfélagsins með þessum gjörningi.

Þetta eru tvö falleg sambyggð hús á einni hæð og brjóta þau svæðið upp á skemmtilegan hátt þannig að svæðið verður fjölbreyttara og fallegra. En enn ein blokkin á þessu svæði myndi gera svæðið einsleitara og ekki jafn aðlaðandi. Það er nóg af byggingarlandi í kringum Selfoss. Það er ekki þörf á því að rífa tvö ágæt hús og byggja í staðinn blokk fyrir eldri borgara er snýr að Heilbrigðisstofnun Suðurlands. Ég held að eldri borgararnir á Sólvangi á Eyrarbakka hafi ekkert lakari öryggiskennd þó þeir sjái ekki Heilbrigðisstofnun Suðurlands út úr stofugluggann sinn.

Ég vona að bæjarfulltrúar falli frá þessari fyrirætlun sinni að fara að rífa tvö ágæt hús að verðmæti um 700 milljónir króna og finni væntanlegri eldri borgara blokk stað á einhverju óbyggðu byggingarlandi Árborgar. Við þurfum ekki að leika sama leikinn og í Reykjavík þar sem framkvæmdir hafa ekki alltaf verið til fyrirmyndar, en þar hafa góð og falleg hús ekki gengið í endurnýjun lífdaga, heldur verið brotin niður eins og pappahús væru og þyrpingar hárra blokka byggðar í staðinn. Ég held að þessi gjörningur sem hér um ræðir, að fara að henda tæpum milljarði á haugana, muni ekki slá einhverjar pólitískar keilur fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í vor.

Aldís Sigfúsdóttir,
verkfræðingur

Nýjar fréttir