Það var bros á öllum andlitum þegar Lyfja bauð til uppistands í Hellisskógi nú á dögunum í tilefni af 30 ára afmæli apóteksins. Um 60 manns, jafnt ungir sem aldnir, mættu til að hlæja saman og njóta þess að hlýða á Sögu Garðars fara á kostum.
Gestum var boðið upp á kaffi og heitt kakó til að ylja sér í snjónum. Markmið viðburðarins var að koma saman, hlæja og njóta útivistar í fallegri náttúru – en hvort tveggja er talið hafa jákvæð áhrif á andlega og líkamlega heilsu.
Eygló Gísladóttir tók ljósmyndirnar.




