6.7 C
Selfoss

Strandveiðisjómenn á C svæði heimsóttir

Vinsælast

Kjartan Sveinsson, formaður Strandveiðifélags Íslands sótti heim strandveiðisjómenn á Norðausturlandi og Austfjörðum ásamt Friðjóni Inga Guðmundssyni varaformanni og Álfheiði Eymarsdóttur stjórnarmanni félagsins um helgina.

Fundirnir voru haldnir í ljósi þess bráðavanda sem liggur fyrir í strandveiðikerfinu að um 80% aflans er komið á land og liggur fyrir að veiðarnar verði stöðvaðar í byrjun júlí. Þetta er endurtekið efni frá því á síðustu vertíð og bitnar mest á C svæðinu þar sem almennilegur fiskur kemur ekki fyrr en í júlí og ágúst.

Fundað var á Þórshöfn, Borgarfirði eystri og á Neskaupstað. Mætingin var góð og ræddar lausnir og aðgerðir til að ráða bót á þessum bráðavanda C svæðisins.

Við erum öll í sama liðinu

Hreinskiptin skoðanaskipti og upplýsingagjöf á báða bóga sýndi það og sannaði að strandveiðisjómönnum er mest í mun um að strandveiðikerfið sé sanngjarnt fyrir alla landshluta.

Strandveiðifélagið tekur með sér dýrmætar upplýsingar  af fundunum og skipuleggur nú næstu skref.

STÍ

 

Nýjar fréttir

Lúxusseðla

Listaflakk um Árborg

Tölum saman