2.9 C
Selfoss

Einn besti karlakór heims heldur tónleika í Skálholti

Vinsælast

Kórinn Orphei Drängar – sem hefur verið titlaður besti karlakór í heimi, heldur tónleika í Skálholtsdómkirkju föstudaginn 16. október kl 19:00.

Kórinn var stofnaður í Uppsölum árið 1853 og hefur í meira en 170 ár sameinað ríka norræna kórhefð og framsækna tónlistarsköpun. Hann þekktur fyrir þéttan og samstilltan söng, skýra tónmyndun og nákvæman flutning. Kórinn ræður yfir miklu styrkleikasviði, frá hljóðlátum og fíngerðum söng til kraftmikilla kafla, og leggur áherslu á skýra túlkun og fjölbreytt blæbrigði.

Kórinn hefur ferðast víða um heim og starfað með við fremsta tónlistarfólk heims sem hefur skipað honum í fremstu röð karlakóra.

Stjórnandi er Cecilia Rydinger og undir hennar stjórn flytur kórinn fjölbreytta efnisskrá með verkum eftir meðal annarra Hugo Alfvén, Eleanor Daley, Knut Nystedt og Franz Schubert, auk íslensku tónskáldanna Hildar Guðnadóttur og Þorkels Sigurbjörnssonar. Píanóleikari er Folke Alin. Karlakór Reykjavíkur flytur einnig nokkur lög á tónleikunum.

Þetta er fyrsta heimsókn kórsins til Íslands frá árinu 2002 – viðburður sem unnendur kórsöngs og lifandi tónlistar ættu alls ekki að láta fram hjá sér fara.

Miðaverð 5000 kr – miðasala á Tix.is https://tix.is/event/22205

Nýjar fréttir