Íþróttavika Evrópu fór fram dagana 23.–30. september og tók Suðurland virkan þátt líkt og fleiri landshlutar. Íþróttavikan er haldin árlega í yfir 30 Evrópulöndum undir slagorðinu #BeActive og er markmiðið að hvetja almenning til að hreyfa sig oftar og meira í daglegu lífi, óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi.
Á Suðurlandi var boðið upp á fjölbreytta dagskrá þar sem íþróttafélög, sveitarfélög og frjáls félagasamtök tóku höndum sama. Sex sveitarfélög á Suðurlandi hlutu styrk og voru skráð þátttakendur í verkefninu árið 2026: Hrunamannahreppur, Hveragerðisbær, Skeiða- og Gnúpverjahreppur, Sveitarfélagið Ölfus og Vestmannaeyjabær og var dagskráin fjölbreytt og skemmtileg. Meðal viðburða í Hveragerði voru t.d. opnar æfingar, gönguferðir, fyrirlestrar og kynningar á nýjum greinum.
Íþróttavikan er gott tækifæri til að minna á að við þurfum öll á hreyfingu að halda til að efla líkamlega og andlega heilsu, sama á hvaða aldursskeiði við erum. Hreyfing á ekki eingöngu að snúast um árangur, heldur um gleði, samveru og vellíðan. Þau sem misstu af viðburðum sem fóru fram í íþróttavikunni eru hvött til að kynna sér það starf sem í boði er í heimabyggð allt árið um kring og taka þátt sér til ánægju og heilsubótar.


