5.6 C
Selfoss

Veitingastaðurinn Ós lítur dagsins ljós

Vinsælast

Veitingastaðurinn Ós hefur verið opnaður á Hótel Selfossi, þar sem Riverside var áður til húsa. Töluverðar breytingar hafa verið gerðar á rýminu og með nýjum stað kemur einnig nýr matseðill.

Staðurinn verður opnaður formlega í dag og verður opnunarteiti haldin í næstu viku.

„Við vildum nota tækifærið til að taka staðinn aðeins í gegn og skapa hlýlegra og afslappaðra umhverfi. Það hefur margt breyst, bæði í útliti og í því sem við erum að bjóða upp á,“ segir Hlynur Friðfinnsson, rekstrarstjóri Óss.

Andri Björn Jónsson yfirkokkur hefur undanfarið unnið að nýjum matseðli fyrir staðinn og segir Hlynur mikla tilhlökkun vera innan hópsins að fá loksins að bjóða gestum að prófa hann.

Ein af stærri breytingunum er nýtt lounge-svæði þar sem gestir geta sest niður, fengið sér drykk og átt rólega stund, hvort sem þeir eru á leið í mat eða vilja einfaldlega koma við.

„Okkur langar að Ós verði staður sem fólk á svæðinu sækir, ekki bara gestir hótelsins. Heimamenn eru sérstaklega velkomnir og við vonum að þeir geri staðinn að sínum,“ segir Hlynur.

Starfsfólk Óss hlakkar til að taka á móti gestum á nýjum stað og kynna bæði nýtt útlit og nýjan matseðil.

Nýjar fréttir