3.4 C
Selfoss

Beint streymi: Fundur um framtíð ferðaþjónustunnar á Hótel Selfossi

Vinsælast

Beint streymi

Samtök ferðaþjónustunnar (SAF), Markaðsstofa Suðurlands og Markaðsstofa Reykjaness boða til fundar um stöðu og framtíð ferðaþjónustunnar í Suðurkjördæmi á Hótel Selfossi í dag, fimmtudaginn 15. október, kl. 17.

Fundurinn, sem ber yfirskriftina Mótvindur, fer fram á sama tíma og ýmis mál sem geta haft veruleg áhrif á rekstrarskilyrði ferðaþjónustunnar eru til umfjöllunar á Alþingi. Þar má meðal annars nefna fyrirhugaðar skattahækkanir á baðlón, hækkanir á gistináttaskatti og innviðagjaldi, auk frumvarps um náttúru- og innviðagjald, svokallaðan náttúrupassa.

Aðstandendur fundarins leggja áherslu á að málin snúist ekki eingöngu um ferðaþjónustuna heldur hafi þau einnig áhrif á atvinnu, fjárfestingar, samkeppnishæfni og byggðaþróun í Suðurkjördæmi.

Á fundinum munu fulltrúar Deloitte kynna niðurstöður greiningar á áætluðum skatta- og gjaldahækkunum í ferðaþjónustu samkvæmt fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þá flytja erindi Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri SAF, Kristján Pétur Kristjánsson, eigandi Konvin Hotel, Frímann Snær Guðmundsson, meðeigandi Deloitte, og Haraldur Þór Jónsson, oddviti Skeiða- og Gnúpverjahrepps.

Seinni hluti fundarins verður helgaður pallborðsumræðum með þingmönnum Suðurkjördæmis þar sem rætt verður um þau mál sem nú eru efst á baugi hjá ferðaþjónustunni. Í pallborðinu sitja Ása Berglind Hjálmarsdóttir, Guðrún Hafsteinsdóttir, Halla Hrund Logadóttir, Karl Gauti Hjaltason, Sandra Sigurðardóttir og Sigurður Helgi Pálmason. Jóhannes Þór Skúlason stýrir umræðunum.

Fundarstjórar verða Þuríður H. Aradóttir Braun, forstöðumaður Markaðsstofu Reykjaness, og Ragnhildur Sveinbjarnardóttir, framkvæmdastjóri Markaðsstofu Suðurlands.

Fundurinn stendur til kl. 19 og verður einnig sendur út í beinni útsendingu á vef SAF.

Hægt er að skrá sig á fundinn á vef Samtaka ferðaþjónustunnar.

Nýjar fréttir