1.7 C
Selfoss

Nacho Gil í Umf. Selfoss

Vinsælast

Spænski miðjumaðurinn Nacho Gil er genginn í raðir Selfoss á lánssamningi frá Bestu-deildar liði Vestra. Hann fær leikheimild þann 17. júlí þegar félagaskiptaglugginn opnar.

Nacho, sem er fæddur árið 1993, kom fyrst hingað til lands 2018 þegar hann spilaði með Þór á Akureyri í tvö tímabil. Þaðan fór hann til Ísafjarðar og hefur spilað með Vestra allar götur síðan.

Það sem af er tímabili hefur hann leikið fimm leiki í Bestu-deildinni. Nacho er miðjumaður og getur bæði spilað á miðri miðjunni og djúpur. Leikmaðurinn kom á Selfoss í gær og æfði með liðinu í morgun.

„Ég þekki Bjarna en við unnum saman hjá Vestra fyrir fjórum árum. Bjarni fær það besta út úr þeim leikmönnum sem hann er að vinna með hverju sinni og það er það sem ég þarf á þessum tímapunkti á mínum ferli,” segir Nacho við undirskriftina.

„Ég vonast til þess að hjálpa liðinu að ná markmiðum sínum á tímabilinu. Liðið hefur verið að gera góða hluti í deildinni, með mjög ungt lið og svo eru aðstæðurnar hérna á Selfossi auðvitað frábærar,” segir Nacho að lokum.

Velkominn Nacho!

UMFS

Nýjar fréttir