6.7 C
Selfoss

Frumsamin tónlist í Hrunakirkju á laugardag

Vinsælast

Gítarleikarinn Hróðmar Sigurðsson og bassaleikarinn Ingibjörg Elsa Turchi spila í Hrunakirkju í Hruna þann 4. maí kl.16. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð þeirra sem fram fer víðsvegar um landið vor og sumar 2024. Tvíeykið leikur frumsamda tónlist sem væntanleg er á plötu á þessu ári, en þau hafa nú þegar gefið út tvö lög sem komin eru á streymisveitur. Einnig munu þau leika tónlist af plötum þeirra beggja-Meliae (2020) og Stropha (2023) eftir Ingibjörgu og plötu Hróðmars frá 2021 sem er samnefnd honum.

Hróðmar Sigurðsson, rafgítar/lap steel gítar
Ingibjörg Elsa Turchi, rafbassi

Frítt er inn á tónleikana og er tónleikaröðin styrkt af Menningarsjóði FÍH og Flytjendasjóði listamannalauna.

Nýjar fréttir