6.1 C
Selfoss

Okkar orlof í takt við tímann

Vinsælast

Enn á ný getum við haldið orlof húsmæðra í Árnes- og Rangárvallasýslu sem er mikið gleðiefni því okkar orlof er sannarlega í takt við tímann. Frá 1976 hefur húsmæðraorlof okkar verið með sama sniði, aldrei farið í utanlandsferðir, heldur alltaf samvera ýmist í skólum eða hótelum og oftast hér í heimabyggðum sem þá styrkir innviði þeirra.

Dagana 22.-26. september næstkomandi verðum við, eins og síðustu ár, á Hótel Örk í Hveragerði þar sem aðstaðan er til fyrirmyndar; gott aðgengi, lyfta, margir salir til afnota, sundlaug, gufubað og heitir pottar. Á hótelið þakkir skildar fyrir gott samstarf og góðan viðurgjörning. Ekki spillir fyrir að Hveragerði er fallegur bær til gönguferða og öll nauðsynleg þjónusta þar til staðar.

Í orlofinu er skipulögð dagskrá alla dagana, stólajóga á morgnana og bingó, fyrirlestur eða annað skemmtilegt á kvöldin. Þess utan geta konurnar slakað á eða notið samverunnar í prjónaskap, spjalli og söng. Einn dag er alltaf farið í dagsferð með rútu og áhugaverðir staðir skoðaðir. Orlofið hefur alltaf verið vel sótt, mættu 88 konur í fyrra, og almenn ánægja með það og er von okkar og trú að konur fái að njóta þess áfram um ókomin ár.

F.h. Orlofsnefnda Árnes- og Rangárvallasýslu,
Arndís Fannberg ritari

Nýjar fréttir