9.5 C
Selfoss

Opið fyrir tilnefningar til foreldraverðlaunanna 2024

Vinsælast

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til foreldraverðlaunanna 2024. Foreldraverðlaunin eru veitt fyrir öflugt foreldrastarf eða verkefni sem sérstaklega stuðla að góðu samstarfi heimila og skóla. Einnig er hægt að tilnefna einstaklinga sem Dugnaðarforka Heimilis og skóla.

Fólk er hvatt til að tilnefna verkefni í sínu nærumhverfi sem stuðlað hafa að góðu foreldrasamstarfi, bættum tengslum heimila og skóla og velferð nemenda eða einstaklinga sem hafa lagt sérlega mikið af mörkum í þágu nemenda og foreldra og bent er á að verðug verkefni á öllum skólastigum eigi hrós skilið, þ.e. í leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.

Mikilvægt er að vanda rökstuðning við tilnefninguna, en frestur til tilnefninga er til og með 2. maí nk. og minnt er á að engin verkefni eru of lítil til að hljóta tilnefningu.

Nýjar fréttir