6.7 C
Selfoss

Grýlupottahlaupið byrjar á laugardaginn

Vinsælast

Grýlupottahlaup Selfoss 2024 fer fram laugardaginn 6. apríl næstkomandi. Er þetta í 54. skipti sem hlaupið er haldið en hlaupið hófst árið 1968.

Grýlupottahlaupið er 880 metra langt og er hlaupaleiðin öll á göngustígum nema endaspretturinn er á tartani á frjálsiþróttavellinum. Skráning í hvert hlaup fyrir sig er kl. 10:00 í frjálsíþróttahluta Selfosshallarinnar (suðurendanum). Hlaupið er ræst af stað kl 11:00. Hlauparar eru ræstir saman sex í einu með 30 sekúndna millibili. Þátttakendur eru á öllum aldri og er aðalatriðið að vera með.

Hlaupið fer fram sex laugardaga í röð. Fyrsta hlaupið er 6. apríl, síðan 13. apríl, 20.apríl, 27.apríl, 4. maí og 11. maí.

Keppt er í aldursflokkum upp að 16 ára aldri en þá tekur við fullorðinsflokkur. Allir þeir sem ljúka 4 hlaupum fá verðlaun. Veittur er bikar í karla- og kvennaflokki þeim hlaupurum sem bestum heildartímum ná í 4 hlaupum.

Nýjar fréttir