6.1 C
Selfoss

Grunnskólinn á Hellu stækkar

Vinsælast

Ný viðbygging grunnskólans á Hellu var tekin í notkun í byrjun skólaárs og þykir hún einkar vel heppnuð. Rýmið er bjart og rúmt og eru kennarar jafnt sem nemendur afar ánægðir með aðstöðuna.

Unnið hefur verið að fínpússun en frágangi er að mestu lokið og húsnæðið komið í fulla notkun. Þann 19. janúar síðastliðinn var opið hús þar sem öllum stóð til boða að skoða nýbygginguna þar sem nokkur fjöldi gesta mætti til að skoða húsakynnin, njóta veitinga og spjalla við stjórnendur og starfsfólk.

Nýr og glæsilegur klifurkastali var einnig reistur á leiksvæði skólans nýlega, börnunum til mikillar ánægju. 2. áfangi stækkunar Helluskóla er einnig hafinn sunnan megin við skólann og gengur þar allt samkvæmt áætlun.

Ljósmynd: Rangárþing ytra.

Nýjar fréttir