6.1 C
Selfoss

Ellefu unglingar af HSK svæðinu í Úrvalshópi FRÍ

Vinsælast

Frjálsíþróttasamband Íslands ásamt unglinganefnd FRÍ hefur birt nýjan Úrvalshóp 2023-2024. Af þeim 49 unglingum sem komust í hópinn eru 11 af sambandssvæði HSK, níu frá Selfossi og einn unglingur kemur frá bæði Dímon og Garpi. Öll æfa þau hjá Frjálsíþróttadeild Umf. Selfoss.

Úrvalshópurinn er valinn út frá árangri á utanhússtímabilinu í ár, en fjölgað getur í hópnum eftir að komandi innanhússtímabili lýkur.

Markmiðið með Úrvalshópi FRÍ 15-19 ára er að skapa umhverfi þar sem íþróttir snúast um fleira en keppni og árangur. Umhverfi þar sem unglingar og ungmenni fá ekki einungis tækifæri til að þróast sem íþróttamenn heldur einnig tækifæri til að eignast vini, skapa sér heilbrigðan lífsstíl og læra að sigrast á sjálfum sér með því að setja sér raunhæf markmið og áætlanir.

Unglingar í hópnum af sambandssvæði HSK:
Álfrún Dilja Kristínardóttir, Selfoss, sleggjukast
Bryndís Embla Einarsdóttir,Selfoss, kúluvarp og spjótkast
Daníel Breki Elvarsson, Selfoss, spjótkast
Eydís Arna Birgisdóttir, Selfoss, 400m
Helga Fjóla Erlendsdóttir, Garpi, 80m gr. og hástökk
Hjálmar Vilhelm Rúnarsson, Selfoss, 300m gr., hástökk, kúluvarp og spjótkast
Hugrún Birna Hjaltadóttir, Selfos, 300m
Ísold Assa Guðmundsdóttir, Selfoss, hástökk og kúluvarp
Ívar Ylur Birkisson, Dímon, 100m gr., 300m gr. og hástökk
Vésteinn Loftsson, Selfoss, kringlukast
Þorvaldur Gauti Hafsteinsson, Selfoss, 800m

Hægt er að sjá úrvalshópinn í heild sinni og árangursviðmið hér.

Nýjar fréttir