6.7 C
Selfoss

Stjórnendur SS á Hvolsvelli eiga heiður skilinn

Vinsælast

Í framhaldi af grein sem ég sendi blaðinu og kom út í 19. október 2023 langar mig að koma eftirfarandi á framfæri. Það eru kærar þakkir til Sláturfélags Suðurlands sem hefur í þrígang stutt Vini Seljavallalaugar með höfðinglegum styrkjum varðandi afmælishátíðir sem haldnar hafa verið. Fyrst á 75 ára afmælishátíð Laugarinnar árið 1998. Næst árið 2003 á 80 ára hátíðinni og nú síðast á 100 ára afmælinu sem haldið var uppá þann 12. ágúst 2023. Í fyrstu tvö skiptin gaf SS okkur allan veislukostinn og nú í sumar fengum við 50% afslátt af grillkjötinu.  Öll samskipti varðandi þessar hátíðir voru mjög góð. Við Vinir Seljavallalaugar viljum þakka Sláturfélagi Suðurlands allan þennan stuðning.

Fyrir hönd Vina Seljavallalaugar,
Páll Andrésson

Nýjar fréttir