5.6 C
Selfoss

Maður í Mislitum sokkum

Vinsælast

Leikfélag Austur-Eyfellinga hóf æfingar á leikritinu Maður í mislitum sokkum eftir Arnmund S. Backman um miðjan september. Leikfélagið var stofnað árið 1970 og hefur sett upp fjölmörg stórverkefni á þessum áratugum.

Leikritið, sem stefnt er á að frumsýna í nóvember, er sprenghlægilegur farsi, þar sem mörg vandamál og allskonar misskilning þarf að leysa.

Leikritið fjallar um Steindóru, einmana ekkju, sem býr í blokk ásamt fleiri eldri borgurum. Hún rekst óvænt á ókunnan mann í bílnum sínum einn daginn þegar hún kemur úr búðinni. Hann er kaldur, hrakinn og illa áttaður, veit ekki hvaðan hann kom, eða hvert hann er að fara.

Hún tekur hann heim með sér til að hlúa að honum, og þá hefst atburðarrás, sem aðrir íbúar blokkarinnar hafa sínar skoðanir á.

Má bara hirða folk nánast upp af götunni án þess að láta einhvern vita?

Leikstjóri er Gunnsteinn Sigurðsson, leikendur eru átta, en fjölmargir aðstoðarmenn koma að sýningunni og í tilkynningu frá leikfélaginu segir að æfingar gangi vel.

Nýjar fréttir