7.3 C
Selfoss

Helga Jóhanna er nýr formaður FKA Suðurlandi

Vinsælast

Helga Jóhanna Úlfarsdóttir ferðaþjónustubóndi að Skeiðum, formaður FKA Suðurlandi og eigandi Heima Holiday Homes. Ljósmynd: Aðsend.

Helga Jóhanna Úlfarsdóttir var kosin formaður á aðalfundi FKA Suðurland sem haldinn var í Rauða húsinu Eyrabakka á dögunum. Helga Jóhanna er eigandi Heima Holiday Homes, er ferðaþjónustubóndi að Skeiðum í uppsveitum Suðurlands.

„Við höldum áfram góðu starfi FKA Suðurlands er kemur að sýnileika, tengslaneti og að hafa áhrif á samfélagsumræðuna,“ segir Helga Jóhanna sem var með framboðsræðu á netinu þar sem hún var stödd erlendis.

Í nýrri stjórn sitja ásamt Helgu Jóhönnu þær Íris Brá Svavarsdóttir, Íris Tinna Margrétardóttir, Ingunn Jónsdóttir, Ragna Gunnarsdóttir og ný inn í stjórn er Jessi Kingan og varakona ný í stjórn er Aníta Dís Káradóttir.

Stækkandi deild á öflugu svæði

Fundarstjóri var Ingunn Jónsdóttir.

FKA Suðurland er skipað ríflega 80 konum sem koma úr fjölbreyttum starfsgreinum á Suðurlandi og fer þeim ört fjölgandi. „Við komum til með að virkja fleiri konur á svæðinu en líka vera duglegar að sækja aðra viðburði hjá FKA. Laufey Guðmundsdóttir stóð sig frábærlega og flestar úr fyrri stjórn halda áfram þannig að þetta verður frábært,“ sagði Helga Jóhanna sem var með framboðsræðu á netinu þar sem hún var stödd erlendis sem og Íris Brá Svavarsdóttir sem fylgdist með fundinum á netinu og heldur áfram í stjórn FKA Suðurlandi.

Landsbyggðadeildir Félags kvenna í atvinnulífinu hringinn í kringum landið

Hlutverk landsbyggðadeilda inna Félags kvenna í atvinnulífinu er að efla konur í öllum landsbyggðum og styrkja tengslanet nærumhverfis. Finna má landsbyggðadeildir félagsins hringinn í kringum landið. FKA Suðurland vill efla konur til ábyrgðar og þátttöku í atvinnulífinu með jákvæðri nálgun og gleði í fyrirrúmi. Haldnir eru áhugaverðir viðburðir, bæði í samvinnu við aðrar deildir FKA og viðburðir sérsniðnir að félagkonum á svæðinu. Farið er í heimsóknir í fyrirtæki kvenna, fræðsluviðburðir haldnir og fyrirlesarar bæði aðfengnir eða úr hópi félagskvenna á Suðurlandi.

Fundurinn fór fram í rauða Húsinu Eyrabakka, fundarstjóri var Ingunn Jónsdóttir framkvæmdastjóri Háskólafélagi Suðurlands og gestur fundarins Elínborg Telma Ágústsdóttir með erindið „Kona býr til podcast – Nýhugsun”.

Nýjar fréttir