7.4 C
Selfoss

Vetrarstarf Karlakórs Selfoss 2023-2024

Vinsælast

Kynningarkvöld fyrir nýja félaga

Vetrarstarf Karlakórs Selfoss er að hefjast núna þegar vetur nálgast. Aðalfundur kórsins var haldinn 28. ágúst sl. og þar var kjörin stjórn, en hana skipa; Ómar Þór Baldursson, form. og aðrir stjórnarmenn eru Þórir Haraldsson, Einar Hermundsson, Björgvin R. Snorrason, Jóhann Pétur Jóhannsson og Unnar Steinn Guðmundsson.

Kynningarkvöld, þar sem farið verður yfir starfsemi komandi vetrar, og nýir söngmenn boðnir velkomnir, verður haldið mánudagskvöldið 25. september kl. 19:30, og fyrsta æfing vetrarins verður mánudagskvöldið 2. október kl. 19:30 í félagsheimili kórsins að Eyravegi 57. Komandi starfsár er það 59. í sögu kórsins, sem var stofnaður 1965. Mörg spennandi og skemmtileg verkefni eru framundan og söngskrá vetrarins (lagaval) verður væntanlega kynnt á fyrstu æfingunni, en æft verður einu sinni í viku, á mánudagskvöldum kl. 19:30-22:00. Fastir punktar í vetrarstarfinu eru jólatónleikar sem haldnir verða í Selfosskirkju og Skálholtskirkju í desember. Þá eru vortónleikar kórsins áformaðir í Selfosskirkju samkv. venju á sumardaginn fyrsta, 25. apríl 2024 og þriðjudaginn 30. apríl, svo verður sungið í Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn 2. maí og lokatónleikar verða svo í Skálholtskirkju laugardaginn 4. maí 2024.

Hugmyndir eru uppi um sérstaka söngferð til Salzburg næsta vor, sem verður væntanlega kynnt síðar á starfsárinu

Um og yfir 70 söngmenn hafa starfað með kórnum undanfarin ár og stjórnandi Karlakórs Selfoss er eins og undanfari 8 ár, Skarphéðinn Þór Hjartarson og píanóleikari Jón Bjarnason, sem starfað hefur með kórnum í 12. ár.

Nýir félagar eru sérstaklega boðnir velkomnir og eldri söngmenn eru hvattir til að mæta.

VBr.

Nýjar fréttir