7.3 C
Selfoss

Íþróttavika Evrópu 2023 hefst á morgun, 23. september 

Vinsælast

Íþróttavika Evrópu (The European Week of Sport) er haldin 23. – 30. september í yfir 30 Evrópulöndum. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur líkt og undanfarin ár hlotið styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfið vegna Íþróttaviku Evrópu. 

Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive og til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

Íþróttavikan í Reykjavík hefst á Sjóbaðs- Zumba partýi í Ylströndinni í Nauthólsvík á laugardaginn og Skautahlaupi í Egilshöll á sunnudaginn. 23. – 30. september verður Evrópa iðandi af hreyfingu og full af fjölbreyttum og skemmtilegum viðburðum og Ísland þar á meðal. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hvetur alla sem hafa áhuga á að kynna sér verkefnið nánar og allt það sem í er boði er með því að kíkja inná www.beactive.is eða á samfélagsmiðla verkefnisins (Facebook/Instagram) undir BeActive Iceland. ÍSÍ hvetur almenning að skella sér á opna æfingu eða prófa eitthvað alveg nýtt og deila því svo á @beactiveiceland eða #beactiveiceland. 

Fjölmörg sveitarfélög hafa látið vita af þáttöku, en þegar þetta er skrifað er Árborg eina sunnlenska sveitarfélagið sem hefur látið vita um þátttöku, að undanskildum Vestmannaeyjabæ, en enn geta einyrkjar, íþróttafélög og sveitarfélög tekið þátt. Báðir framhaldsskólarnir á Suðurlandi, FSu og ML, hafa látið vita af þáttöku og auk fyrrgreindra eru fjölmargir einyrkjar og íþróttafélög sem taka þátt í Íþróttavikunni.

Nýjar fréttir