7.8 C
Selfoss

Dagleg rútína að hefjast

Vinsælast

Það hefur sannarlega verið líf og fjör í Sveitarfélaginu Árborg í sumar þar sem bæjarhátíðir, íþróttamót og aðrir viðburðir hafa verið um nánast hverja helgi fyrir okkur íbúa og gesti að njóta. Hin daglega rútína brestur síðan á nú þegar skólarnir hefjast með tilheyrandi viðbótartraffík á morgnana þegar allir þurfa að komast á sína staði. Það er einhver sjarmi við þennan tíma semerfitt er að festa fingur á, kannski er það bara að við mannfólkið viljum flest í raun hafa ákveðna rútínu á hlutunum.

Ég minni líka ökumenn á að gæta sín og taka tillit til gangandi vegfarenda, ekki síst okkar yngstu samborgara sem nú ganga til mennta.

Umhverfið okkar í sumar

Það má með sanni segja að þetta sumar hafi verið tvískipt. Eftir blauta og kalda mánuði kom sumarið með hvelli í júlí og varla sér fyrir endann á blíðunni sem hefur haft veruleg áhrif á allan gróður. Færri umsóknir um sumarstörf, verkföll, mikið viðhald á tækjum og skerðing vinnuskóla gerði vinnu umhverfisdeildar sveitarfélagsins erfitt fyrir í sumar en engu að síður hafa starfsmenn umhverfisdeildar unnið frábært starf við að halda flestum svæðum í þéttbýliskjörnum sveitarfélagsins vel hirtum, komið niður sumarblómum og skreytingum svo eftir er tekið. Það viðurkennist þó, án þess að á nokkurn sé hallað, að ekki tókst að halda áætlun um snyrtingu á öllum götum og svæðum eins og vonir stóðu til. Vil ég því þakka öllum þeim íbúum sem hafa afmikilli ósérhlífni tekið sig til og snyrt sitt nánasta umhverfi í sumar. Það er bæði gleðilegt og þakkarvert að sjá og heyra af því hvernig íbúar taka til hendinni og leggja fram aðstoð sína við að halda umhverfinu snyrtilegu.

Breyttur opnunartími sundlauga Árborgar

Sveitarfélagið hefur undanfarna mánuði staðið í erfiðum aðgerðum til hagræðingar í rekstri. Þaðhefur m.a. falið í sér skerðingu á þjónustu, frestun framkvæmda og því miður, uppsögnum starfsmanna. Markmið þeirra aðgerða sem ráðist hefur verið í er m.a. að lækka rekstrarkostnaðinn sem hefur vaxið of mikið undanfarin ár í hlutfalli við tekjur. Meðal þeirra þjónustuþátta sem verður fyrir skerðingu eru sundlaugarnar okkar og þrátt fyrir að rekstur þeirra sé ekki lögbundið verkefni sveitarfélaga, telja flestir þær mikilvægan hluta af daglegu lífi samfélagsins. Undirritaður er í þeim hópi.

Það er ekki sjálfsögð eða einföld aðgerð að skerða opnunartíma stofnana og fyrirtækja sveitarfélagsins en nauðsynleg við núverandi aðstæður. Þannig mun breyting á opnunartíma sundlauganna skila sparnaði upp á um 50 milljónir króna á ári, þar af um 20 milljónum vegna sundlaugarinnar á Stokkseyri og 30 milljónum í heildina í Sundhöll Selfoss.

Það er langt því frá stefna okkar í bæjarstjórn að skerða framboð til heilsueflingar fólks og helst vildi undirritaður geta bætt í fremur en dregið úr. Aðstæður á þessum tímapunkti knýja okkur því miður til þeirra aðgerða. Það er mín einlæga trú og markmið að hægt verði að auka opnunartímann aftur í báðum sundlaugum fyrr en seinna enda tel ég að við séum öll sammála umað gott aðgengi að sundlaugum landsins sé til hagsbóta fyrir samfélagið.

Að lokum hvet ég okkur öll til að líta björtum augum til haustsins og njóta útivistar sem kostur er í okkar fallega umhverfi.

Bragi Bjarnason,
formaður bæjarráðs og oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg.

Nýjar fréttir