7.5 C
Selfoss

Tölvulistinn tekur við þjónustu Símans á Selfossi

Vinsælast

Síminn hefur samið við Heimilistæki/Tölvulistann um frekara samstarf fyrirtækjanna en nú munu Heimilistæki/Tölvulistinn taka að sér endursölu og þjónustu fyrir Símann á Selfossi og í Reykjanesbæ. Áður hafa Heimilistæki/Tölvulistinn verið endursöluaðili Símans á Egilsstöðum en frá og með 1. september munu þau taka að sér að þjónusta viðskiptavini Símans í alls þremur bæjarfélögum.

Viðskiptavinir Símans í þessum bæjarfélögum og nærsveitum geta því fengið alla ráðgjöf og þjónustu hjá Heimilistækjum/Tölvulistanum varðandi fjarskiptaþjónustu, útskipti á búnaði ofl.

„Við erum afskaplega ánægð að geta stækkað samstarf okkar við Heimilistæki/Tölvulistann sem hefur gengið afskaplega vel og við þannig aukið aðgengi að þjónustu og ráðgjöf sem viðskiptavinir okkar geta fengið í sinni heimabyggð. Þeirra starfsfólk þekkir þjónustu Símans mjög vel og eru þau frábærir fulltrúar okkar á staðnum ásamt því að hafa tæknilega þekkingu sem hjálpar okkur að veita enn betri þjónustu sem skiptir okkur máli“ segir Lárus Gunnarsson, leiðtogi einstaklingssölu hjá Símanum.

„Eftir áratuga gott samstarf á Egilsstöðum, þar sem Heimilistæki/Tölvulistinn hafa sinnt viðskiptavinum Símans við góðan orðstír, þá er það mikið gleðiefni að útvíkka samstarfið.  Við hlökkum til samstarfsins og bjóðum viðskiptavini Símans á Selfossi og í Reykjanesbæ velkomna í verslanir okkar,” segir Hlíðar Þór Hreinsson, framkvæmdastjóri Heimilistækja og Tölvulistans.

Nýjar fréttir