3.4 C
Selfoss

Síðasta sýningarhelgi sýningar Guðrúnar Tryggva í Sesseljuhúsi

Vinsælast

„Verið velkomin á lokahóf sýningar minnar ONÍ sem staðið hefur í Sesseljuhúsi á Sólheimum síðan 3. júní sl. Sýningarspjall og léttar veitingar laugardaginn 19. og sunnudaginn 20. ágúst frá kl. 14:00 til 17:00,“ segir í tilkynningu sem Guðrún sendi frá sér.

Guðrún Arndís Tryggvadóttir er fædd í Reykjavík en býr og starfar á Selfossi. Hún fékk inngöngu í Myndlista- og handíða Íslands sextán ára gömul, fór í framhaldsnám til Parísar og síðan til München þar sem hún hlaut æðstu verðlaun akademíunnar við útskrift. Tveggja ára dvöl á Íslandi fylgdi í kjölfarið, starfslaun listamanna og einkasýning á Kjarvalsstöðum 1987 en síðan fór hún til Berlínar í eitt ár og til Bandaríkjanna í fimm ár þar sem hún tók þátt í fjölda sýninga. Hún átti síðan eins árs viðdvöl á Íslandi veturinn 1992-1993 og stofnaði þá myndmenntaskólann Rými. Síðan lá leiðin aftur til Þýskalands þar sem hún stofnaði hönnunarstofuna Kunst & Werbung, málaði og var m.a. fengin til að hanna minnisvarða fyrir borgina Großalmerode. Guðrún sneri aftur til Íslands um aldamótin 2000. Eftir heimkomuna urðu náttúruvernd og umhverfismál henni æ mikilvægari. Árið 2004 hóf hún undirbúning að stofnun umhverfisvefsins Náttúran.is / Nature.is sem hún rak til ársins 2016. Frá árinu 2017 hefur hún starfað sem landvörður meðfram listsköpun sinni og rekið fræðslu- og útgáfufélagið Listrými sem gaf m.a. út bókina Lífsverk – Þrettán kirkjur Ámunda Jónssonar árið 2019 en Ámundi var einn virtasti lista- og handverksmaður 18. aldar á Suðurlandi. Sýningunni ONÍ fylgir sýningarskrá sem einnig er gefin út af Listrými. Guðrún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir störf sín, bæði á sviði umhverfismála og menningarmiðlunar sem og fyrir myndlist sína. Verk hennar byggja á sterkum hugmyndafræðilegum og oft sögulegum grunni en hún gerir sífellt tilraunir með nýja tækni og frásagnaraðferðir í list sinni. tryggvadottir.com.

Nýjar fréttir