7.3 C
Selfoss

Hjartaáfall á Sviðinu

Vinsælast

Drag-sýningin Heart Attack verður á Sviðinu í Miðbæ Selfoss á morgun, föstudaginn 23. júní.

Drag „fjölskyldan“ House of Heart hefur slegið í gegn með mánaðarlegum drag-sýningum á skemmtistaðnum Kiki í Reykjavík síðasta árið. Þeim þykir tími til að hópurinn nái heimsyfirráðum og ætla þau að sjálfsögðu að hefja slaginn á Selfossi.

Þau ætla að sýna gestum hvernig alvöru dragsýning fer fram og lofa þau glitrandi, ofurhlýrri skemmtun, fullri af skemmtilegri tónlist og kjánaskap. Drag „fjölskyldan“ samanstendur af skrautlegum karakterum sem gestir fá að kynnast í gegnum glimmer, grín og gleði.

„Lola von Heart er ættmóðir fjölskyldunnar sem skilur eftir sig slóð af brotnum hjörtum, Chardonnay Bublée er mamma þín á Tene, Milo de Mix elskar pabbabrandara, og Úlla la Delish er kannski „dóttirin“ en samt með lengstu lappirnar í hópnum. Úlla er líka uppalin á Selfossi og ekkert smá spennt að koma í heimsókn í besta bæ í heimi með þetta flotta show!,“ segir í tilkynningu frá Heart Attack.

„Við hvetjum ykkur til að mæta í litríkustu sparifötunum og vera fabjúlöss með okkur,“ segir enn fremur í tilkynningunni.

Forsala fer fram á heimasíðu Sviðsins og á Tix.is og eru gestir hvattir til að tryggja sér miða í tíma.

Nýjar fréttir