2.8 C
Selfoss

Björgunarsveitin Kári hlaut Verndarvæng Icelandair

Vinsælast

Björgunarsveitin Kári í Öræfum hlaut Verndarvæng Icelandair á Landsþingi Slysavarnarfélagsins Landsbjargar sem fram fór á Akureyri um síðustu helgi. Verndarvængurinn er viðurkenning sem Icelandair veitir björgunarsveit fyrir eftirtektarvert starf. Ari Fossdal stöðvarstjóri Icelandair á Akureyri afhenti sveitinni viðurkenninguna.

Björgunarsveitin Kári er fámenn sveit sem leggur afar mikilvægt lóð á vogarskálarnar við að stuðla að öryggi ferðamanna í Austur-Skaftafellssýslu. Sveitin sinnir stóru svæði og eru um 100 kílómetrar í næstu sjúkrabíla og aðrar bjargir. Mikið álag hefur verið á herðum sveitarinnar sem sinnir fyrsta viðbragði ef eitthvað kemur upp á.

Mynd úr starfi Kára.

„Slysavarnarfélagið Landsbjörg gegnir lykilhlutverki í almannavarnarkerfi okkar Íslendinga. Við höfum um árabil átt í mjög góðu samstarfi við félagið og sem það flugfélag sem flytur flesta ferðamenn til Íslands lítum við á það sem skyldu okkar að leggja okkar af mörkum til að stuðla að auknu öryggi ferðamanna. Björgunarsveitin Kári er fámenn en mjög öflug og sinnir stóru svæði sem fjöldi ferðamanna heimsækir ár hvert. Það er því mjög ánægjulegt að geta stutt við þeirra öfluga starf,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair.

Icelandair hefur átt í samstarfi við Slysavarnarfélagið Landsbjörg frá árinu 2014 og verið einn af aðalstyrktaraðilum félagsins. Auk þess eiga félögin í víðtæku samstarfi er varðar forvarnir, upplýsingagjöf til erlendra ferðamanna, öryggisþjálfun og gerð viðbragðsáætlana.

Otti Rafn Sigmarsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar segir viðurkenninguna mjög mikilvæga og hvetjandi til góðra verka fyrir þá sem hana hljóta. „Björgunarsveitin Kári er kannski fámenn sveit, en afar mikilvæg í því neti bjarga sem Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur byggt upp um land allt. Því mikilvægasta björgunarsveitin er jú alltaf sú sem er næst, þegar óhapp verður,“ segir Otti.

Random Image

Nýjar fréttir