7.3 C
Selfoss

Styrktartónleikar á Laugalandi

Vinsælast

Styrktartónleikar kóra og tónlistarfólks í Rangárþingi verða á Laugalandi sunnudagskvöldið 14. maí, kl. 20.00.

Þeir sem standa að tónleikunum eru Hringur, Karlakór Rangæinga, Kirkjukór Kálfholtskirkju, Kvennakórinn Ljósbrá, Miðtúnssystur, Vinir Jenna og Öðlingarnir.

Tónleikarnir eru til styrktar fjölskyldu Guðjóns Björnssonar á Syðri-Hömrum sem lést af slysförum 17. mars sl.

Aðgangseyrir er kr. 4.000.- og posi er á staðnum.

Verið öll hjartanlega velkomin.

Nýjar fréttir