7.3 C
Selfoss

Hátíðahöld í Garðyrkjuskólanum á fyrsta degi sumars

Vinsælast

Löng hefð er fyrir því að halda upp á sumarkomuna í Garðyrkjuskólanum á Reykjum. Opið hús á Reykjum er fastur liður hjá fjölda fólks. Í ár standa nemendur við Garðyrkjuskólann fyrir hátíðinni og þau eru búin að skipuleggja glæsilega samkomu.

Meðal þess sem boðið verður uppá er kynning á námi við Garðyrkjuskólann og FSu, markaðstorg með nýtt grænmeti, veitingasala, ýmiskonar fræðsla og afþreying fyrir unga sem aldna. Stórglæsileg túlípana sýning verður í garðskálanum þar sem hægt verður að skoða um 80 afbrigði af túlípönum.

Eftir hádegið verður hátíðardagskrá þar sem Garðyrkjuverðlaunin 2023 verða afhent. Húsið verður opið kl. 10:00-17:00

FSU

Nýjar fréttir