7.3 C
Selfoss

Bleikja fær rekstrarleyfi til fiskeldis

Vinsælast

Matvælastofnun hefur veitt Bleikju ehf. rekstrarleyfi til fiskeldis að Laugum í Rangárþingi ytra. Bleikja ehf. sótti um nýtt rekstrarleyfi vegna 100 tonna hámarkslífmassa í seiða- og mateldi á lax, bleikju og regnbogasilungi að Laugum. Umsókn um nýtt rekstrarleyfi var móttekin þann 20. janúar 2021. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Bleikju ehf. FE-1208 að Laugum en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu auglýsingar.

Nýjar fréttir