0.5 C
Selfoss

Árborg segir upp 57 starfsmönnum

Vinsælast

Sveitarfélagið Árborg sagði í dag upp ráðningarsamningum við 57 starfsmenn sveitarfélagsins um leið og tilkynnt var um 5% launalækkun æðstu stjórnenda, bæjarstjóra og sviðsstjóra. Þetta kom fram í tilkynningu sem bæjarstjóri Sveitarfélagsins Árborgar gaf út í dag.

Fram kemur í tilkynningunni að þessar aðgerðir eru liður í hagræðingu í rekstri sveitarfélagsins sem gripið er til vegna erfiðrar fjárhagsstöðu sem kynnt var íbúum í síðustu viku.

Alls starfa í dag um 1047 manns í 827 stöðugildum hjá Sveitarfélaginu Árborg og þær aðgerðir sem nú hefur verið gripið til snerta öll rekstrarsvið bæjarins og hafa áhrif á um 100 starfsmenn. Uppsagnarfrestur starfsmanna er samkvæmt samningum á bilinu 3 til 6 mánuðir.

Nánari upplýsingar um áhrif uppsagnanna á starfsemi og þjónustu sveitarfélagsins verða kynntar síðar, en á þessum tímapunkti munu stjórnendur sveitarfélagsins ekki tjá sig frekar um málið.

Random Image

Nýjar fréttir