7.1 C
Selfoss

Barn veiktist eftir að hafa innbyrt ólögleg fíkniefni í formi sælgætis

Vinsælast

Lögreglan á Suðurlandi rannsakar nú mál sem upp kom í aprílmánuði þar sem barn hafði, í gáleysi, innbyrt sælgæti sem innihélt ólögleg fíkniefni.

Í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi segir að barnið hafi verið flutt á heilbrigðisstofnun og að ekki sé annað vitað en að það muni ná sér að fullu. „Svona mál koma því miður upp annað slagið hér á landi og eru þau litin mjög alvarlegum augum. Einhverra hluta vegna er efnum komið fyrir í hlaup „fígúrum“ dulbúið sem sælgæti sem oftast er markaðsett fyrir börn. Rannsókn málsins beinist m.a. að því að kanna hvort um einangrað tilvik á svæðinu sé að ræða en það skal tekið fram að frekari upplýsingar um hana verða ekki gefna á þessu stigi málsins.  Lögreglan hvetur fólk til að vera á varðbergi gagnvart slíkum ófögnuði og ef að fólk hefur upplýsingar þessu tengt að hafa samband við lögreglu. Vakin er athygli á því að slíkar upplýsingar eru meðhöndlaðar sem trúnaðarmál,“ segir ennfremur í tilkynningu frá lögreglu.

Nýjar fréttir