10.6 C
Selfoss

Fjögur tilboð bárust í byggingu nýrrar Hamarshallar

Vinsælast

Þann 9. mars sl. rann út frestur til að skila inn tilboði í byggingu nýrrar Hamarshallar. Alls bárust 4 tilboð í verkið.

Skipuð hefur verið matsnefnd á vegum Hveragerðisbæjar, sem í sitja fimm fulltrúar, þar á meðal einn arkitekt. Hlutverk matsnefndarinnar er að meta þau tilboð og fylgigögn sem bárust.

Matsnefndin hefur nú tvær vikur til þess að rýna gögnin og meta tilboðin. Þann 23. mars verða síðan verðtilboð opnuð og heildarniðurstöður tilboða ætti því að liggja fljótlega fyrir eftir það.

Nýjar fréttir