3.9 C
Selfoss

Byssusýning í Veiðisafninu á Stokkseyri

Vinsælast

Byssusýning Veiðisafnsins á Stokkseyri sem í ár verður í samvinnu við verslunina Veiðihornið og Skotgrund – Skotfélag Snæfellsness, verður haldin laugardaginn 18. og sunnudaginn 19. mars 2023 frá kl. 11–18 í húsakynnum Veiðisafnsins, Eyrarbraut 49 á Stokkseyri.

Ólafur og félagar í Veiðihorninu sýna úrval skotvopna og búnað til skotveiða ásamt sjónaukum og aukabúnaði, til sýnis og sölu. Kynntir verða rifflar frá Remington, Howa og Benelli, haglabyssur frá Fair, Remington, Stoeger, Benelli og Franchi, einnig sjónaukar frá Leoupold, Crimson Trace og Nikko Stirling ásamt hljóðdeyfum frá Stalon, endurhleðsluvörum frá Barnes, Remington, Frankford, Alliant og fl.

Félagsmenn úr Skotgrund – Skotfélag Snæfellsness verða með fjölbreytt úrval skotvopna til sýnis ásamt kynningu á starfsemi skotfélagsins. Kennir þar margra grasa og verður úrval skotvopna til sýnis, haglabyssur, rifflar, skammbyssur, herrifflar ásamt ýmsu tengdu skotveiðum m. a. úr einkasöfnum.

Einnig verða til sýnis skotvopn og munir frá Veiðisafninu og einkaaðilum, má þar nefna skotvopn frá Sigurði Ásgeirssyni, Einari frá Þverá, Sveini Einarssyni frv. veiðistjóra, Sigmari B. Haukssyni, Braga frá Þverá, Drífu-haglabyssur frá Jóni Björnssyni heitnum frá Dalvík og byssur smíðaðar af Jóni Þorsteinssyni frá Ólafsfirði svo eitthvað sé nefnt.

Allt áhugafólk um skotvopn og veiðar er velkomið.

Nánari upplýsingar um byssusýninguna má sjá á síðu Veiðisafnsins og á síðu Veiðihornsins.

 

Nýjar fréttir