0.6 C
Selfoss

Kjartan lögreglustjóri kvaddur

Vinsælast

Kjartan Þorkelsson lögreglustjóri lét af störfum við embætti Lögreglustjórans á Suðurlandi þann 28. febrúar síðastliðinn, en hann hefur gegnt starfi lögreglustjóra frá stofnun embættisins, þann 1. janúar 2015.

Farsæll ferill hans í þágu hins opinbera spannar hins vegar mun lengri tíma eða rúm 40 ár, fyrst  sem fulltrúi sýslumanns í Rangárvallasýslu 1982, síðan sem sýslumaður í Ólafsfirði, á Blönduósi og  í Rangárvallasýslu og nú síðast, eins og áður sagði, lögreglustjóri á Suðurlandi.

Kjartan var kvaddur og honum þakkað heilladrjúgt samstarf af samstarfsfólki sínu í hófi sem haldið var honum til heiðurs á skrifstofu embættisins á Hvolsvelli. Lögreglumenn stóðu heiðursvörð við komu hans til fundar yfirstjórnar og í framhaldi af því vel sótt kaffisamsæti með samstarfsfólki hans. Við starfi lögreglustjóra á Suðurlandi tekur Grímur Hergeirsson.

Nýjar fréttir