4.9 C
Selfoss

Nýr Judoþjálfari hjá UMF Selfoss

Vinsælast

George Bountakis hefur verið ráðinn til starfa sem þjálfari hjá Judodeild UMF Selfoss, George kemur frá Spörtu í Grikklandi. Hann er er 6. Dan í Judo og hefur áratuga reynslu af þjálfun íþróttamanna og sérstaklega judo.

Auk menntunar og reynslu frá Grikklandi hefur George sótt menntun sína og reynslu til Japan þar á meðal TSUKUBA og TOKAI háskólanna og talar hann japönsku. BSc gráðu í íþróttaþjálfun lauk hann frá Cambridge háskóla 2016 og doktorsnámi frá Hertfordshire háskóla 2023 með judo sem sérgrein. George var einn af landsliðsþjálfurum Grikklands um árabil. Þá þjálfaði hann landsliðskeppendur Olympíuleika fyrir 3 lönd; Grikkland, Wales og Stóra-Bretland. Ein af nemendum hans var Ioulietta Boukouvala sem náði að vinna til fjölda gullverðlauna á sterkestu judomótum heims.

Fyrir Judosamband Wales (UK) bjó George til sérhæft kennsluefni ætlað fyrir judoþjálfara til kennslu fyrir börn og unglinga. Þá hefur Georgios þjálfað lögreglu og sérsveitir hersins í Grikklandi, og verða slíkar sérhæfðar æfingar í boði á næstunni hjá Judodeild Selfossi.

Hér hefur aðeins verið drepið á því helsta en við hjá Judodeild UMF Selfossi bjóðum George velkominn til starfa.

UMF Selfoss

Nýjar fréttir