7.1 C
Selfoss

Landsvirkjun stefnir að raforkusölu til GeoSalmo

Vinsælast

Landsvirkjun og GeoSalmo hafa undirritað skilmálayfirlýsingu fyrir raforkusölu til laxeldisfyrirtækisins sem nú undirbýr landeldi í nágrenni við Þorlákshöfn. Yfirlýsingin felur í sér að fyrirtækin eru sammála um grunnforsendur vegna orkusamnings sem fyrirhugað er að gera síðar. Áætlanir GeoSalmo falla vel að forgangsröðun Landsvirkjunar í orkusölu á næstu árum en GeoSalmo nýtir íslenskar auðlindir til að framleiða sjálfbæra, loftslagsvæna og næringarríka matvöru.

Hágæðalax í lokuðu kerfi

GeoSalmo áformar að byggja upp landeldi á umhverfisvænum hágæðalaxi í lokuðu fiskeldiskerfi á landi vestan Þorlákshafnar. Áætlanir gera ráð fyrir allt að 24 þúsund tonna eldi þegar stöðin verður komin í fullan rekstur, en fyrsti áfangi nemur um 7.300 tonnum. Fyrirtækið ætlar sér að verða leiðandi aðili í þróun fiskeldis á landi á Íslandi og framleiða hágæðavöru til sölu á innlendum og erlendum mörkuðum. Lögð verður áhersla á að starfsemi þess sé í góðri sátt við umhverfi og samfélag.

GeoSalmo er langt komið með undirbúning að framkvæmdum. Fyrirtækið hefur lagt fram umhverfismatsskýrslu og er umsagnarfrestur fyrir hana nýliðinn. Niðurstaða í leyfismálum mun liggja fyrir á næstu vikum og mánuðum. Allt eru þetta mikilvægir liðir í að framkvæmdir geti hafist. Þá hefur GeoSalmo samið við norska fyrirtækið Artec-Aqua um hönnun og verkumsjón fyrir verkefnið en það fyrirtæki hefur byggt fiskeldisstöðvar á landi í Noregi með  góðum árangri. Stöðin verður búin fullkomnasta búnaði sem völ er á til stýringar hitastigs og vatnsgæða. Öll ker verða lokuð og tryggir það mikinn stöðugleika og gæði í framleiðslunni.

„Eftirspurn eftir grænu orkunni okkar er miklu meiri en við náum að sinna og við höfum þurft að segja nei við mörgum góðum verkefnum. Við forgangsröðum orkusölunni, m.a. í þágu aukinnar almennrar notkunar, orkuskipta og nýsköpunar. Fyrirætlanir GeoSalmo um landeldi, með áherslu á sjálfbærni og umhverfisvænan rekstur, falla mjög vel að þessari forgangsröðun okkar,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.

„Ég er mjög ánægður með þennan áfanga sem leggur grunn að orkusamningi við Landsvirkjun. Vinnu við undbúning miðar vel, en núna erum við að stíga lokaskrefin í nauðsynlegum leyfisumsóknum, samningagerð, fjármögnun og öðrum undirbúningi. Það er mikill styrkur fyrir verkefnið að Landsvirkjun sé tilbúin að taka þetta skref með okkur. Við erum bjartsýn á framtíðina og leggjum áherslu á að starfsemi fyrirtækisins verði í góðri sátt við umhverfi og samfélag auk þess að framleiða hágæðavöru fyrir okkar viðskiptavini,“ segir Jens Þórðarson, framkvæmdastjóri GeoSalmo.

Nýjar fréttir