-5 C
Selfoss

Björgvin ráðinn hótelstjóri Hótel Selfoss

Vinsælast

Björgvin Jóhannesson hefur verið ráðinn hótelstjóri Hótel Selfoss. Hann hefur víðtæka þekkingu og reynslu úr atvinnulífinu sem hótelstjóri og stjórnandi. Björvin var hótelstjóri Hótel Kötlu-Höfðabrekku frá 2004-2018, fjármálastjóri Estadal 2 frá 2018-2022 og nú síðast var hann framkvæmdastjóri Ungmennafélags Selfoss. Björgvin er með B.Sc. gráðu í Viðskiptafræði með áherslu á ferðamálafræði frá Háskólanum á Akureyri og MBA gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

„Það er mikill fengur fyrir Hótel Selfoss að fá Björgvin til starfa og er hann frábær viðbót við okkar öfluga hóp starfsmanna,“ segir í tilkynningu frá Hótel Selfossi.

„Ég er mjög spenntur að taka að mér að stýra þessu glæsilega hóteli. Hér er flottur hópur starfsfólks sem ég hlakka til að vinna með. Selfoss er stöðugt að verða meira aðdráttarafl ferðamanna, bæði innlendra og erlendra, sérstaklega með tilkomu miðbæjarins glæsilega. Hótelið er á besta stað í bænum til að taka á móti þessum ferðamönnum og það er tilhlökkun að sjá til þess að allir njóti dvalarinnar hjá okkur,“ sagði Björgvin Jóhannsson.

Nýjar fréttir