7.3 C
Selfoss

Hertar takmarkanir á HSU vegna veirufaraldra

Vinsælast

Í tilkynningu frá HSU kemur fram að ákveðið hafi verið að takmarka tímabundið heimsóknir til sjúklinga við einn gest á heimsóknatíma vegna veirufaraldra sem geisa í samfélaginu.
Heimsóknargestum ber einnig að vera með grímu meðan þeir dvelja á deildunum og mega ekki vera með einkenni frá öndunarvegi, þar á meðal flensueinkenni eða kvef.
Tilgangurinn með þessum takmörkunum er að draga úr líkum á því að smit berist inn á deildir HSU.
Í annarri tilkynningu segir að fólk sem er með einkenni frá öndunarvegi þurfi að bera grímu á starfsstöðvum HSU.

Nýjar fréttir