-0.9 C
Selfoss

Jólaljósin tendruð á árbakkanum 

Vinsælast

Það var fjölmenni þegar ljósin voru kveikt á jólatrénu á árbakkanum í síðustu viku. Jón G. Valgeirsson sveitarstjóri kveikti á trénu eftir að viðstaddir höfðu talið niður. Bræðurnir Kristinn Ingi og Gunnar Bjarki Guðnasynir léku jólalög fyrir viðstadda og stýrðu dansi í kringum jólatréð.

Jólasveinarnir voru töluvert fyrr á ferðinni en venja er enda voru þeir rammvilltir eftir að hafa lagt af stað úr Heklu eldsnemma einhvern morgunin í vikunni, í raun svo villtir að það þurfti að kalla út björgunarsveitina. Sem betur fer fann Elín Stolzenwald formaður björgunarsveitarinn þá ofarlega á Rangárvöllum en þá fréttu þeir að til stæði að kveikja á ljósunum á trénu á Hellu í dag. Þeir létu greipar sópa í litlu lopasjoppunni í morgun og komu færandi hendi til krakkana eins og þeim er von og vísa.

Random Image

Nýjar fréttir