7.1 C
Selfoss

Jólabókaupplestur í Bókakaffinu í kvöld

Vinsælast

Einvalalið mætir í Bókakaffið á Selfossi í kvöld, fimmtudagskvöldið 1. desember og les þar úr nýjum bókum. Húsið verður opnað kl. 20 og upplestur stendur frá 20:30 til 21:30. Einstök jólastemning með kakói og piparkökum.

Þau sem lesa upp þetta fyrsta upplestrarkvöld eru: Elísabet Jökulsdóttir sem segir frá eigin bók Saknaðarilmi og nýútkominni ljóðabók Skáld-Rósu. Ögmundur Jónasson með bókina Rauða þráðinn. Óskar Magnússon sem segir frá bókum sínum Jagúar skáldsins og Leyniviðauka 4. Jón Hjartarson með ljóðabók sína Lifað með landi og sjó. Ásdís Ingólfsdóttir sem kynnir þýðingu sína á bók Jonas Hassen Khemiri, Ég hringi í bræður mína.

Allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Nýjar fréttir