8.4 C
Selfoss

Hátíðarnótt í Selfosskirkju 6. desember

Vinsælast

Fyrir jólin 2015 kom út geisladiskurinn „Hátíðarnótt“ og þar leika þeir Andrés Þór Gunnlaugsson gítarleikari, Karl Olgeirsson píanóleikari og Jón Rafnsson bassaleikari, jólalög og sálma sem fylgt hafa íslensku jólahaldi í gegnum áratugina. Þeir hafa síðan þá, alltaf haldið nokkra tónleika á aðventunni og á líðandi aðventu verður engin undantekning þar á, því framundan eru fimm tónleikar. Á tónleikunum, sem eru um klukkustundar langir, leika þeir diskinn frá upphafi til enda. Útsetningarnar eru í rólegri kantinum og stemningin sem myndast er bæði þægileg og afslappandi, sem áheyrendur tala gjarnan um og eru ánægðir með, – gott að koma og bara hlusta, íhuga og njóta.

Þeir munu leika í Selfosskirkju þriðjudaginn 6. desember kl.20.00 og er aðgangur ókeypis.

Tónleikarnir eru styrktir af Tónlistarsjóði
Sjá nánar um verkefnið á https://jrmusic.is/jr-verkefni/hatidarnott/

Nýjar fréttir