7.9 C
Selfoss

Sóknarfæri í nýsköpun

Vinsælast

Kynningarfundur á netinu 30. nóvember kl.13:00-14:00

Sóknarfæri í nýsköpun er átta vikna sunnlenskur viðskiptahraðall þar sem áhersla er lögð á verkefni sem tengjast orku, mat og líftækni, ferðaþjónustu og skapandi greinum.

Hraðlinum verður stýrt af Svövu Björk Ólafsdóttur stofnanda RATA sem jafnframt leiðir kynningarfundinn.

Hraðallinn er ætlaður frumkvöðlum, nýjum fyrirtækjum og nýsköpunarverkefnum innan rótgróinna fyrirtækja á Suðurlandi sem eru komin af hugmyndastigi og vilja nýta Sóknarfæri í nýsköpun til að komast lengra með sín verkefni.

Teymin hitta reynslumikla leiðbeinendur, frumkvöðla, fjárfesta og stjórnendur fyrirtækja á Suðurlandi og víðar á ráðgjafafundum, sitja vinnustofur og fræðslufundi og mynda sterkt tengslanet sín á milli.

Hraðallinn fer fram að mestu leyti á netinu en teymin hittast fjórum sinnum meðan á hraðlinum stendur á vinnustofum á völdum stöðum á Suðurlandi.

Kynningarfundur um hraðalinn verður haldinn í netheimum þann 30. nóvember nk og eru allir áhugasamir hvattir til að mæta og heyra allt um verkefnið – skráning fer fram á: https://fb.me/e/2GTWkKYLD

Verkefnið er samstarfsverkefni www.sass.is og www.hfsu.is, styrkt af Lóu nýsköpunarsjóði landsbyggðarinnar og Sóknaráætlun Suðurlands.

Nýjar fréttir