-0.5 C
Selfoss

Aðventuhátíð að Laugalandi

Vinsælast

Kvenfélgið Eining Holtum heldur Aðventuhátíð að Laugalandi sunnudaginn 27. nóvember kl 13-16.

Tombólan vinsæla – engin núll.  Söluborð með ýmsan varning til sölu,  tónlistarflutningur,  dansatriði, bókaskiptimarkaður o.fl. Jólasveinar koma í heimsókn og kveikt verður á jólatré. Heitt kakó og vöfflur verða seldar og rennur allur ágóði í Barnasjóð Einingar.

Kvenfélagskonur vonast til að sjá sem flesta og njóta fyrsta sunnudags í aðventu saman.

Nýjar fréttir