-1.1 C
Selfoss

Fimm leiðir að vellíðan

Vinsælast

Árið 2008 var bresku samtökunum New Economic Foundation falið að fara yfir rannsóknir á áhrifaþáttum vellíðunar og finna gagnreyndar aðferðir til að auka vellíðan og lífshamingju.

Samtökin fóru yfir rannsóknir ríflega 400 rannsakenda víða um heim og tóku saman þær aðferðir sem höfðu sterkastan rannsóknargrunn að baki. Fimm leiðir að vellíðan, eða

„Five Ways to Wellbeing“, eru afrakstur þeirrar vinnu. Rannsóknir sýna að jafnvel lítilsháttar aukning á vellíðan getur átt þátt í að draga úr sumum geðrænum vandamálum og hjálpað fólki að blómstra í lífinu. Þessar leiðir voru eftirfarandi og búið að þýða fyrir Embætti Landlæknis:

Myndaðu tengsl: Myndaðu tengsl við fólkið í kringum þig, fjölskyldu þína, vini, samstarfsfólk og nágranna. Ræktaðu tengslin heima hjá þér, í vinnunni, í skólanum og í nánasta umhverfi þínu. Líttu á þessi tengsl sem hornsteina lífs þíns og gefðu þér tíma til að hlúa að þeim. Að byggja upp þessi tengsl styrkir þig og auðgar líf þitt á hverjum degi.

Leiðir til að efla tengslin eru fjölmargar og í raun bara hugmyndaflugið sem heftir fólk í því. Tilvalið er að gera eitthvað saman og skapa með því góðar minningar. Það eflir líka tengslin að hjálpast að við þau verkefni sem fyrir liggja.

Hreyfðu þig: Farðu út að ganga eða í sund. Njóttu útivistar. Hjólaðu. Farðu í leiki. Ræktaðu garðinn. Dansaðu. Hreyfing færir þér vellíðan. Það er mikilvægasta er að finna hreyfingu sem þú hefur gaman af og hentar líkamlegu ástandi þínu og getu.

Það eykur líkurnar á að það takist ef þú færð vin eða fjölskyldumeðlim til að vera með þér í hreyfingunni. Flestum finnst bæði skemmtilegra og auðveldara að hreyfa sig með öðrum. Það eflir líka tengslin og þannig má segja að tvær flugur séu slegnar í sama högginu.

Taktu eftir: Haltu í forvitnina. Taktu eftir hinu óvenjulega. Veittu árstíðabreytingum athygli. Njóttu augnabliksins, hvort sem þú ert úti að ganga, að borða hádegismat eða tala við vini þína.

Vertu vakandi fyrir veröldinni í kringum þig og hvernig þér líður. Að leiða hugann að því sem þú upplifir hjálpar þér að meta það sem skiptir þig máli.

Haltu áfram að læra: Prófaðu eitthvað nýtt. Rifjaðu upp gamalt áhugamál. Skráðu þig á námskeið. Taktu að þér ný verkefni. Lærðu að spila á hljóðfæri eða elda uppáhalds matinn þinn.

Settu þér markmið sem þú munt hafa gaman af að ná. Það er skemmtilegt að læra nýja hluti og eykur sjálfstraustið.

Gefðu af þér: Gerðu eitthvað fallegt fyrir vin þinn eða ókunnuga manneskju. Sýndu þakklæti. Brostu. Gefðu af tíma þínum. Taktu þátt í félags- eða sjálfboðastarfi.

Fjölmörg góðgerðafélög eru rekin af sjálfboðaliðum og innan íþróttafélaganna er alltaf þörf fyrir vel meinandi sjálfboðaliða. Hikaðu ekki við að taka að þér verkefni fyrir félagsskap sem þú tengist eða hefur áhuga á.

Pistillinn er birtur í tengslum við Forvarnarviku HSU þar sem í ár er lögð áhersla á streitu og lífstíl.

Bjarnheiður Böðvarsdóttir, hjúkrunarfræðingur

Nýjar fréttir